Augnbotnahrörnun (AMD)
Skemmdir á augnbotnum sem eiga sér stað seint á ævinni kallast aldursbundin augnbotnahrörnun, oft skammstafað AMD (e. Age related Macular Degeneration).

Augað
Augað er í laginu eins og bolti. Ljósopið er að framan og hleypir ljósi inn í augað. Fyrir aftan ljósopið er augasteinninn, sem beinir ljósinu að sjónhimnunni aftast í auganu. Sjónhimnan er viðkvæmur vefursem breytir ljósi í myndir og sendir þær til heilans.
Aftast í auganu, beint fyrir aftan ljósopið er guli bletturinn, svæði sem er stútfullt af keilum og þar er sjónin skýrust. Guli bletturinn er mjög mikilvægur því með honum sjáum við skýrt það sem er beint fyrir framan okkur. Hann gerir okkur einnig kleift að sjá smáatriði, til dæmis við lestur og skrift. Hann stuðlar einnig að því að við sjáum liti.
Augnbotnahrörnun
Stundum skemmast fíngerðu frumurnar í gula blettinum og hætta að virka. Margt getur valdið þessu. Skemmdir sem eiga sér stað seint á ævinni kallast aldursbundin augnbotnahrörnun, oft skammstafað AMD (e. Age related Macular Degeneration).
Yfirleitt er talað um tvær tegundir af aldursbundinni augnbotnahrörnun en þær eru „þurr“ augnbotna- hrörnun og „vot“ augnbotnahrörnun. Nöfnin eru lýsandi fyrir það sem augnlæknirinn sér þegar hann horfir á gula blettinn í sjónhimnunni.
Þurra afbrigðið
Þurra afbrigðið er algengara. Það þróast hægt en veldur smám saman skemmdum á miðjusjón. Margir verða fyrst varir við að sjónin sé að versna þegar hún verður óskýr og litir fölna. Enn sem komið er hefur ekki fundist nein lækning við þurri augnbotnahrörnun. Hins vegar gagnast hjálpartæki eins og stækkunargler oft við lestur og aðra nærvinnu.
Vota afbrigðið
Vota afbrigðið er afleiðing þess að nýjar æðar vaxa á bak við sjónhimnuna og valda bjúg, blæðingu og örum sem geta leitt til sjóntaps. Vot augnbotnahrörnun getur þróast hratt en stundum er hægt að grípa inn í með meðferð á fyrstu stigum. Um fjórðungur þeirra sem hafa aldursbundna augnbotnahrörnun eru með vota afbrigðið.
Bæði vot og þurr augnbotnahrörnun hefur yfirleitt áhrif á bæði augun en annað augað gæti orðið fyrir áhrifum á undan hinu. Erfitt getur verið að átta sig á sjóntapinu því sjónin í betra auganu reynir að bæta upp fyrir sjóntapið á verra auganu. Það er ekki hægt að ofnota sjónina og því skaltu vera óhrædd/ur við að nota hana að vild.
Aldursbundin augnbotnahrörnun er algengasta orsök lélegrar sjónar hjá fólki yfir sextugu. Hún veldur ekki sársauka og leiðir nánast aldrei til algjörs sjóntaps því aðeins miðjusjónin verður fyrir skemmdum. Það þýðir að nánast allir með aldursbundna augnbotnahrörnun munu halda nægri hliðarsjón til að komast um og viðhalda sjálfstæði sínu.
Hvað veldur aldursbundinni augnbotnahrörnun (AMD)?
Enn sem komið er hefur ekki tekist að finna orsökina. Samt sem áður eru ýmsir áhættuþættir til staðar. Þeir eru eftirfarandi:
- Aldur – AMD er aldursbundin hrörnun.
- Erfðir – Svo virðist vera sem ákveðin gen hafi áhrif á það hvort viðkomandi þróar með sér AMD eða ekki.
- Reykingar – Margar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl milli reykinga og AMD. Að hætta að reykja gæti minnkað áhættuna á AMD.
- Sólarljós – Sumar rannsóknir gefa til kynna að sólargeislar hafi áhrif á sjónhimnuna. Notaðu sólgleraugu til að vernda augun.
- Næring – Rannsóknir benda til að sum vítamín og steinefni geti hægt á þróun AMD.
Þó að hvorki sé hægt að koma í veg fyrir að við eldumst, né hafa áhrif á þau gen sem við erfum, er hægt að stjórna þeim umhverfisþáttum sem tengjast AMD. Að vernda augun fyrir sólarljósi, neyta hollrar fæðu með nóg af ávöxtum og grænmeti og hætta að reykja getur allt dregið úr áhættunni að fá AMD.
Greinin er unninn upp úr útgefnu efni Sjónstöðvarinnar: Fræðsla um augnsjúkdóma/AMD - aldursbundin augnbotnahrörnun