Hafðu samband
Veldu hvort þú vilt senda almenna fyrirspurn eða ósk um tímabókun.
Því miður er biðtími hjá okkur langur (6-12 mánuðir, mismunandi eftir læknum).
Ef þú ert að hugsa um sjónmælingu fyrir gleraugum eða linsum þá bendum við á sjóntækjafræðinga í næstu gleraugnaverslun.
Ef þú finnur fyrir eftirfarandi einkennum, skaltu leita beint á Bráðamóttöku:
- Ljósglampar í sjónsviðinu, jafnvel þó augun séu lokuð
- Mikið magn af flygsum sem fljóta um í auganu
- Dökk gardína/slæða yfir sjónsviði, byrjar oftast í jaðri en færist svo nær miðju
- Rautt auga með ljósfælni og verk
- Skyndileg blinda