Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Fræðsla

Gláka

Gláka er alvarlegur augnsjúkdómur sem getur leitt til blindu ef ekkert er í gert.

Hvað er gláka?

Gláka er sjúkdómur sem sem veldur óafturkræfum skemmdum í sjóntaug og síðar sjónsviði oftast vegna ofþrýstings í auga. Því miður gefur gláka ekki einkenni fyrr en sjúkdómurinn er kominn á hátt stig og hefur þá valdið óafturkræfum skemmdum.

Með tímanum myndast skuggar í sjónsviði sem renna síðan saman í stærri og dekkri skugga þannig að sjónsviðið þrengist og getur leitt blindu ef ekkert er að gert. Gláka er ein algengasta orsök sjónskerðingar og blindu í heiminum en næstalgengasti blinduvaldur á Íslandi, á eftir kölkun í augnbotnum.

Heilbrigt-auga

Hvað stjórnar þrýstingi í auganu?

Frumur í auganu framleiða vatnskenndan vökva (e. Aqueous). Hann myndast jafnt og þétt og hefur það hlutverk að flytja næringu til ákveðinna hluta augans. Vökvinn leitar síðan út í gegnum fíngerðan síuvef. Ef jafnvægi milli framleiðslu og afrennslis vökvans raskast hefur það áhrif á augnþrýstinginn.


Gláka

Hvers vegna getur aukinn þrýstingur verið hættulegur?

Ef afrennsli vökvans skerðist, eykst þrýstingurinn í auganu og getur skaðað sjóntaugina.

Ef sjóntaugin verður fyrir of miklum þrýstingi getur hún skaðast. Hversu mikill skaðinn verður fer eftir hversu mikill þrýstingurinn er, hversu lengi hann hefur verið til staðar og hversu vel sjóntaugin þolir hann. Hækkaður þrýstingur veldur hægfara skemmdum sem smám saman leiða til sjónskerðingar og jafnvel blindu ef ekkert er að gert. Mjög hár augnþrýstingur skaðar sjóntaugina á stuttum tíma.


Mismunandi tegundir gláku

Hægfara gláka (e. Primary open-angle glaucoma)

Hægfara krónísk gláka er algengasta tegund gláku. Flæðið í gegnum síuvefinn stíflast eða minnkar með árunum sem leiðir til hærri augnþrýstings. Hægfara krónísk gláka er lúmskur sjúkdómur sem er yfirleitt einkennalaus þangað til sjúkdómurinn er komin á hátt stig eða lokastig. Ástæðan er sú að henni fylgja engir verkir og fólk hefur yfirleitt góða sjón beint fram og sú sjón helst yfirleitt þar til glákan er kominn á hátt stig.

Fyrstu einkenni sjóntapsins eru þau að sjónin hverfur á bogalaga svæði aðeins fyrir ofan og/eða fyrir neðan miðju þegar horft er beint fram. Þetta svæði stækkar síðan bæði út á við og inn á við, ef glákan er ekki meðhöndluð. Miðja sjónsviðsins verður seinast fyrir áhrifum, en þegar það gerist getur þér liðið eins og þú sért að horfa í gegnum langt rör (e. Tunnel vision). Þá er hún komin á alvarlegt stig, skemmdir óafturkræfar og sjón getur tapast ef ekkert er að gert.

Bráðagláka (e. Acute glaucoma)

Önnur tegund gláku, svokölluð bráðagláka lýsir sér allt öðruvísi og henni fylgja önnur einkenni. Bráðagláka er sjaldgæf á Vesturlöndum, hún myndast þegar flæðið frá auganum stíflast alveg, skyndilega og enginn vökvi kemst út. Við það hækkar þrýstingurinn mjög mikið og og yfirleitt upplifir sjúklingurinn mikla verki og jafnvel ógleði og uppköst. Ef ekkert er að gert þá getur sjúklingurinn orðið blindur á nokkrum dögum, jafnvel á tveimur eða þremur sólarhringum.

Það er mjög mikilvægt að meðhöndla þessa tegund gláku strax og sú meðhöndlun er allt öðruvísi en meðhöndlun á hægafar krónískri gláku. Leita skal strax á bráðamóttöku ef grunur er um bráðagláku.

Fylgigláka (e. Secondary glaucoma)

Aukinn augnþrýstingur af völdum annars augnsjúkdóms kallast fylgigláka.

Meðfædd gláka (e. Congenital glaucoma)

Meðfædd gláka eða barnagláka er sjaldgæfur sjúkdómur í ungbörnum. Hann orsakast af meðfæddum galla í auganu.

Blinda af völdum gláku eða blinda af völdum kölkunar í augnbotnum

Munurinn á að verða blindur af völdum gláku og verða blindur af völdum kölkunar í augnbotnum er að í síðarnefnda tilvikinu þá missir sjúklingurinn skörpu sjónina, hættir að þekkja andlit og að geta lesið. Ef ekkert annað er að þá getur hann bjargað sér og getur verið með góða ratsjón. Hann getur gengið um þar sem hann þekkir sig, meðal annars á eigin heimili og gert einfalda hluti. Sá einstaklingur getur lifað með blindunni fái hann aðstoð. Sá sem verður blindur af völdum gláku verður alblindur og þarf að lifa í myrkri.

Orsakir gláku

Hvað veldur gláku er enn ekki að fullu vitað en áhættuþættir sjúkdómsins eru:

  • Hækkaður augnþrýstingur
  • Hækkaður aldur - Hægfara gláka verður mun algengari með aldrinum en er sjaldgæf fyrir 40 ára aldur. Hún hefur áhrif á 1% fólks yfir 40 ára, 5% fólks yfir 65 ára og 10% fólks yfir 70 ára.
  • Sykursýki I eða sykursýki II - Þeir sem eru með sykursýki geta verið í meiri hættu en aðrir að þróa með sér gláku.
  • Mikil nær/fjarsýni - Fólk með mikla nær- eða fjarsýni er í meiri hættu á að fá glákuskemmdir í augun
  • Fjölskyldusaga um gláku - Ef þú átt náinn ættingja með gláku skaltu fara reglulega í augnskoðun. Ráðleggðu öðrum fjölskyldumeðlimum að gera slíkt hið sama. Regluleg augnskoðun er sérstaklega mikilvæg eftir 40 ára aldur

Þekkt orsök fyrir hækkuðum augnþrýstingi er skert flæði á augnvökva sem safnast upp í auganu. Þegar þrýstingur hækkar í auganu skemmast taugafrumur sjóntaugarinnar smám saman sem getur valdið sjónskerðingu og blindu. Taugafrumur líkamans endurnýja sig ekki og því eru skemmdir á sjóntaug varanlegar.

Meðferð við gláku

Það er engin lækning til við gláku. Það er einungis hægt að halda sjúkdómnum niðri og koma í veg fyrir skemmdir eða koma í veg fyrir meiri skemmdir en þegar hafa orðið.

Meðferðinni má skipta í tvennt:

  • Lyfjameðferð
  • Skurðaðgerðir

Lyfjameðferð

Lyfjameðferðinni má einnig skipta í tvo þætti. Annarsvegar eru það lyf sem hafa áhrif á útflæði augnvökvans og hins vegar lyf sem bæla framleiðslu vökvans þ.e. hafa áhrif á innflæðið.

Skurðaðgerðir við gláku

Skurðagerðum má í raun einnig skipta í tvennt, annarsvegar laseraðgerðir og hins vegar hefðbundnar skurðaðgerðir.

Laseraðgerðir

Við notum tvenns konar lasera, annarsvegar svokallaðan argonlaser, sem notaður er til að hafa áhrif á síuna og auka þannig útflæði á vökvanum og hinsvegar er það svokallaður díóðulaser, sem notaður er þegar glákan er komin á lokastig. Þessi laser hefur áhrif á það líffæri í auganu sem myndar augnvökvann og bælir framleiðslu á honum.

Hefðbundnar skurðaðgerðir

Hefðbundnar skurðaðgerðir eru svokallaðar hjáveituaðgerðir og eru mismunandi aðgerðir framkvæmdar eftir því um hvernig tilfelli er að ræða.

Með hjáveituaðgerð er gert op framhjá síu augans. Stundum eru sett silicone túpur eða rör inn í augað og fer þá vökvinn framhjá síunni í gegnum rörið. Á undanförnum árum hafa orðið talsverðar framfarir í skurðaðgerðum. Algengasta ástæða fyrir því að árangur af aðgerð er ekki nægilega góður er sú að augað myndar mikinn örvef sem lokar fyrir hjáveituna. Með notkun antimetabolita eins og 5-Fluorouracil og Mitomycin C í aðgerðum hefur árangur batnað verulega.

Skurðaðgerðum er yfirleitt beitt þegar önnur meðferð hefur ekki dugað. Ýmist hefur sjúklingurinn ekki svarað lyfjameðferðinni nógu vel eða það eru komnar það miklar skemmdir að þrýstingurinn, sem þarf að vera mjög lágur, næst ekki nægilega langt niður með lyfjum. Stundum þola sjúklingarnir lyfin illa, fá aukaverkanir eða ofnæmi og verður því að hætta gjöf þeirra.

Tíðni gláku á Íslandi

Tíðni gláku tilfella hefur ekki fækkað. Aftur á móti hefur þeim fækkað sem verða blindir vegna gláku. Það má gera ráð fyrir því að 2% þjóðarinnar sé með gláku sem segir okkur að það séu um það bil sex þúsund manns. Það eru að sjálfsögu mjög mismunandi á hvaða stigi sjúkdómurinn er hjá hverjum og einum og mismunandi hversu mikið þarf að sinna sjúklingum með gláku. Það þarf mikið að sinna sjúklingum sem komnir eru með sjúkdóminn á alvarlegt stig og fylgjast þarf vel með þeim.

Hvað getur fólk gert þegar það fer að gruna að það sé komið með gláku?Það er aðeins eitt að gera og það er að leita strax til augnlæknis. Gláku getur einstaklingurinn ekki greint sjálfur. Það getur svo verið ýmislegt annað en gláka sem hrjáir hann. Eftir því sem aldurinn færist yfir þá er enn nauðsynlegra að leita til augnlæknis enda áhættan orðin meiri. Einnig ef gláka er í ættinni þá er nauðsynlegt fyrir einstaklinginn að vera vel vakandi og fara reglulega til augnlæknis. Allir sérfræðingar okkar hjá Augnlæknum Reykjavíkur geta greint gláku og veitt meðferð við sjúkdómnum á frumstigi.

María Soffía Gottfreðsdóttir, helsti sérfræðingur landsins í meðferð gláku

María Soffía Gottfreðsdóttir lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1989. Hún lauk sérfræðiprófi í augnsjúkdómum og augnskurðlækningum frá Duke University í Bandaríkjunum 1996 og hlaut sérfræðiviðurkenningu í glákusjúkdómum frá University of Michigan 1997. Hún hefur verið starfandi sérfræðingur í augnsjúkdómum og augnskurðlækningum við Augndeild Landspítala Háskólasjúkrahúss frá 1999 og sérfræðingur hjá Augnlæknum Reykjavíkur frá árinu 2004.

Til þess að komast að hjá Maríu Soffíu, þarf að vera til staðar staðfest greining á gláku

Greinin er unninn upp úr viðtali sem Lyfjatíðindi tók við Maríu Soffíu og útgefnu efni Sjónstöðvarinnar: Fræðsla um augnsjúkdóma/Gláka