Augnbotna eftirlit og meðferð
Augnbotnasjúkdómar er samheiti yfir sjúkdóma og hrörnunarbreytingar sem leggjast á sjónhimnuna (retina) og gula blettinn (macula) aftast í auganu.

Augnbotnasjúkdómar er samheiti yfir sjúkdóma og hrörnunarbreytingar sem leggjast á sjónhimnuna (retina) og gula blettinn (macula) aftast í auganu.
Þessir sjúkdómar hafa oftast áhrif á miðjusjónina og sjónskerpu, það er lestrarsjónina og hæfileikann til að sjá smáatriði skýrt, en geta í sumum tilfellum ógnað sjóninni alvarlega ef ekkert er að gert.
Hér eru algengustu gerðir augnbotnasjúkdóma
- Aldursbundin augnbotnahrörnun (AMD): Þetta er algengasta orsök alvarlegrar sjónskerðingar og lögblindu á Íslandi hjá fólki yfir fimmtugu.
Sjá nánar fræðslugrein: Aldursbundin augnbotnahrörnun (AMD) - Sykursýkisbreytingar í augnbotnum (Diabetic Retinopathy): Fólk með sykursýki getur fengið skemmdir á fínum háræðum í augnbotnunum.
Sjá nánar fræðslugrein: Sykursýkistengdar augnbotnabreytingar - Blóðtappi í auga (Retinal Vein/Artery Occlusion): Stífla í æðum augnbotnsins sem veldur skyndilegri og sársaukalausri sjónskerðingu.
Sjá nánar fræðslugrein: Blóðtappi í auga - Sjónhimnulos (Retinal Detachment): Þegar sjónhimnan losnar frá undirlagi sínu aftast í auganu. Þetta er bráðatilfelli sem krefst tafarlausrar skurðaðgerðar.
Sjá nánar fræðslugrein: Sjónhimnulos
Sérfræðingar okkar greina með hjálp fullkomnustu tækjakosta, sjúkdóma og hrörnun í augnbotnum. Þeir fylgja sjúklingum eftir og veita meðferð með lyfjum, leysigeislum eða skurðaðgerðum eftir því sem það á við.
- Við notum OCT myndavél af fullkomnustu gerð, sem tekur nákvæmar myndir af augnbotnum og OCT sneiðmyndir (Optical Coherence Tomography) - niðurstöður gefur góða mynd ástandi augnbotna og sjóntaugar.
Tengdar greinar
Sykursýkistengdar augnbotnabreytingar
Lesa meiraÁn meðferðar gætu sykursýkistengdar augnbotnabreytingar valdið varanlegu sjóntapi eða jafnvel blindu á báðum augum.
Augnbotnahrörnun (AMD)
Lesa meiraSkemmdir á augnbotnum sem eiga sér stað seint á ævinni kallast aldursbundin augnbotnahrörnun, oft skammstafað AMD (e. Age related Macular Degeneration).
Blóðtappi í auga
Lesa meiraBlóðtappi í auga (sjónhimnuæðastífla) er alvarlegt ástand þar sem blóðtappi stíflar slagæð eða bláæð í sjónhimnunni og getur leitt til skyndilegrar sjónskerðingar eða sjónmissis.