Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Þjónusta

Gláku eftirlit og meðferð

Greining og meðferð við gláku með lyfjum, leysigeislum og skurðaðgerðum.

Gláka er sjúkdómur sem skemmir sjóntaugina og getur valdið varanlegri sjónskerðingu eða blindu ef hún er ekki greind og meðhöndluð. Einkenni eru oft engin fyrr en sjúkdómurinn er kominn vel á veg.

Allir okkar sérfræðingar geta greint gláku á byrjunarstigi með hjálp fullkomnustu tækja sem völ er á, á sviði augnlækninga:

  • Sjónsviðsmælingartæki mælir sjónsvið - en skuggar á sjónsviði er eitt af byrjunareinkennum gláku.
  • OCT myndavél sem tekur nákvæmar myndir af augnbotnum og OCT sneiðmyndir (Optical Coherence Tomography) - niðurstöður gefur góða mynd ástandi augnbotna og sjóntaugar.
  • Augnþrýstingsmælar.

Hjá okkur starfa jafnframt glákusérfræðingar sem hafa eftirlit með sjúklingum sem hafa greinda gláku og veita lyfjameðferð, laseraðgerðir og skurðaðgerðir, eftir því sem við á. Hjá Augnlæknum Reykjavíkur eru í notkun fullkomin lasertæki sem nýtt eru við meðferð á gláku en skurðaðgerðir eru framkvæmdar á Landspítala.

Tengdar greinar